Það er alltaf notalega hlýtt hjá okkur og heitt á könnunni. Og svo er hægt að fá sér heita súpu og dýrindis hollusturétti í hlaðborði í hádeginu alla daga. Sýningarnar um Landnámið og Egilssögu er góð fjölskylduskemmtun. Við erum með sérstaka barnaleiðsögn á íslensku sem hentar börnum allt niður í 4-5 ára aldur. Hlökkum til að sjá ykkur.


Opnunartímar og verð

Landnáms-og Egilssýningar eru opnar alla daga frá kl. 10-21. Hægt er koma með hópa utan þessa tíma ef bókað er fyrirfram.
Veitingahúsið er opið alla daga frá kl.11:30-21:00
Fyrir bókanir utan almenns opnunartíma hringið í 695-2330


Hvernig þú finnur okkur

Landnámssetrið er neðst í gamla hluta Borgarness í aðeins 5 mín akstursfjarlægð frá þjóðvegi eitt.   Á aðal gatnamótunum inn í bæinn, eftir að komið er yfir Borgarfjarðarbrúna er beygt til vinstri og ekið niður aðalgötuna sem liggur í gegnum bæinn í átt að sjónum. Við erum á vinstir hönd rétt áður en komið er að brúnni yfir í Brákarey.

Aðrar viðurkenningar

Ókeypis leiðsögn í snjallsíma
Eftir að hafa skoðað sýningar Landámsseturs bjóðum við ykkur að hlaða frítt niður  í snjallsíma leiðsögn um sögustaði Egilssögu í nágrenni Borgarness. Starfsfólk okkar aðstoðar með ánægju.

Leiðsögn frá Keflavík
Þessi leiðsögn hefst við Leifstöð. Hún er á ensku og á leiðinni til Reykjavíkur er sagt frá því merkasta sem fyrir augu ber og ýmsum fróðleik um land og þjóð. Þegar komið er að gatnamótum Kringlumýrarbrautar er gefinn kostur á að beygt sé til vinsti inn í bæinn og hættir þá leiðsögnin.
Til Borgarness
Ef síðan er ekið yfir gatnamótin leið út úr bænum hefst leiðsögnin á ný og rekur sig að Landnámssetrinu í Borgarnesi. Leiðsögnin er í gildi í allt að vikutíma eftir það dettur hún út.
Svona nálgast þú leiðsögnina

Þú ferð á ferð á App Store eða Play Store og hleður forritinu niður. Þá leitaru eftir Íslandskortinu og þrengir inn á Keflavíkurflugvöll. Veldu leiðsögnina. Tilvalið að vekja athygli erlendra vina á þessari leiðsögn. Þeir geta hlaðið henni niður áður en þeir koma til Íslands og hlustað heima en þá þarf að velja manual en ekki GPS viðmót.